Ný stúdentahreyfing hefur komið fram. Lætur það vera sitt fyrsta verk að úthúða núverandi stúdentafylkingum.
Hreyfingin Öskra er ekki starfsþjálfun fyrir stjórnmálamenn, við erum ekki pólitíkusar í framapoti heldur skríll sem krefst róttækra breytinga fyrir allt samfélagið og til að ná þeim árangri munum við ekki beita prúðum ályktunum heldur samfélagsþjónustu og beinum aðgerðum, innan og utan háskólans.
Við höfum enga trú á aðferðum stúdentaráðs, sem hefur um langt skeið samanstaðið af íhaldspungum og kratableyðum sem telja það ekki í sínum verkahring að hafa áhrif á þjóðfélagið með öðrum aðferðum en táknrænum gjörningum sem hafa hvorki pólitískan slagkraft né listrænt gildi.
Þessi orð bíta Vöku- og Röskvu-fólk sjálfsagt nokkuð fast, því gagnrýnin er vissulega ekki alveg úr lausu lofti gripin.
Hins vegar spái ég því að byltingarsinnaðir stúdentar verði búnir að éta börnin sín, halda réttarhöld yfir leiðtogum sínum og tortíma sér endanlega á 6-12 mánuðum.

6 ummæli
RSS-veita fyrir þessa færslu
Trackback link
http://andres.eyjan.is/wp-trackback.php?p=954
19. janúar, 2009 at 3:33 eh.
Pingback from Andrés Jóns · VG leiðir Röskvu
16. janúar, 2009 at 11:22 fh.
Helgi
Er H-listinn dauður? Eða er þetta kannski fjórði listinn í framboði?
Komið fjórflokkakerfi í stúdentapólitíkina?
16. janúar, 2009 at 12:14 eh.
Héðinn Björnsson
Flokkakerfi í stúdentapólitík er fáránlegt kosept. Stúdentar ættu að vera með ein hagsmunasamtök í stað þessa rugls.
16. janúar, 2009 at 3:39 eh.
Sigríður Rut Júlíusdóttir
Ég sit hérna á kaffihúsi í heimaborg minni í Virginíu í USA og les íslenskar fréttir og blogg á netinu. Kannski er það bara hippatónlistin sem þetta uppáhalds hippakaffihús mitt spilar (The Who, We’re not gonna take it úr söngleiknum Tommy!) en ég fylltist bjartsýni þegar ég las þessa færslu þína. Gott hjá stúdentum að fleygja gömlum gildum og fylkja sér um nýjar hugsjónir. Svona byrjar byltingin, í grasrótinni og hjá stúdentum. Hvort sem þetta framtak leiðir eitthvað varanlegt af sér eða ekki - það er ekki aðalatriðið. Svona light úthúðun og kjaftháttur trufla mig heldur almennt ekkert.
16. janúar, 2009 at 6:45 eh.
Halli S.
Það er alltaf einstaklega hressandi þegar hópur fólks ákveður að stofna stúdentapólitískan flokk sem ekki tengist landspólitíkinni sterkum böndum líka og leiðinlegu fylkingarnar tvær, Vöskva og Raka.
Nú er bara að vona að þessi sjálfstæða hugsun smiti út frá sér.
16. janúar, 2009 at 10:31 eh.
Kristinn
Það er ekkert aðdáaunarvert við þann sið stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna að róa að því öllum árum að viðhalda sjálfum sér út í hið óendanlega.
Stjórnmálamenn eiga að setja sér markmið og stíga til hliðar þegar markmiðinu er náð. Það væri öðrum til eftirbreytini samtökin myndu tortíma sjálfum sér innan árs.