Það eru mörg vígin sem falla þessa dagana. En sumt lifir af þrátt fyrir efnahagskreppu og fólksflótta.
Á föstudagskvöld verður t.d. sveitaball í Laufskálarétt í Hjaltadal.
Hljómsveitin Von og Björgvin Halldórsson leika fyrir dansi.
Þetta heyrði ég á Bylgjunni rétt í þessu.

(Hundurinn hér að ofan mætti í réttirnar, en fær ekki að fara á ballið)
—–
Ég borðaði kvöldmat áðan á veitingastaðnum Maður lifandi í Borgartúni. Sem er svo sem ekki í frásögur færandi.
Nema að þeir eru búnir að setja stórt merki á gluggann þar sem stendur að staðurinn sé vaktaður á nóttunni.
Ég fór að hugsa um, að líklega hefði mér fundist það rasismi ef það þetta hefði verið skrifað á ensku.
Samt eru mörg annars konar skilti skrifuð á ensku, sem eiga að ná til bæði þeirra sem skilja íslensku og þeirra sem skilja hana ekki.
—–
Fór í skemmtilega afmælisveislu í Grafarholti í gær. Maturinn var mjög góður og ég fékk að rifja upp að sum blóm eru æt (þau voru í salatinu).
Ég var í nokkrum vandræðum með að finna gjöf fyrir afmælisbarnið, sem er Bandaríkjamaður og gestur hér á landi.
Svo mundi ég eftir sniðugu ljósmyndabókinni Elves in Iceland. Það var fullkomin gjöf fyrir viðkomandi. En eitt af því sem lesandi bókarinnar verður að gera, er að ímynda sér (nú eða sjá) álfa á myndunum.
Trúlausir og andlega lokaðir einstaklingar sjá víst ekkert nema náttúruna í bakgrunni.
Það eru yfirleitt meðmæli með bókum, ef maður hugsar þær sem gjöf, en langar svo í hana sjálfur að maður kaupir tvö eintök.
—–
Á bakhlið bókarinnar er ósköp falleg tilvitnun í Proust:
“The real voyage of discovery consists not in seeking new lands, but seeing with new eyes.”

Rita ummæli
RSS-veita fyrir þessa færslu
Trackback link
http://andres.eyjan.is/wp-trackback.php?p=672