Trúfrelsi

Símatíminn á Útvarpi Sögu á milli kl.11 og 12 fylltist af fólki sem telur ótækt að múslimar fái lóð undir mosku í Reykjavík.

Þetta fólk gleymir því að hér á Íslandi ríkir trúfrelsi (þrátt fyrir óþörf og úrelt tengsl ríkis og kirkju).

Það þýðir að hver sem er má reisa hér bænahús og iðka þar þá trú sem hann vill.

—–

Einhverjir innhringjenda höfðu miklar áhyggjur af því að heyra ef til vill í bænakalli. Sjálfsagt að fólk fái að vita hvernig því verður háttað. Þó ekki nema til þess að það geti sofið rólegt á nóttunni, laust við áhyggjur af söng sem það muni hugsanlega þurfa að hlýða á í framtíðinni.

En er nokkuð við slíkt að athuga ef það er ekki hávaðasamara eða tíðara en spil kirkjuklukkna?

Ég bjó að vísu einu sinni efst á Frakkastígnum og get ábyrgst að Hallgrímskirkjuklukkurnar eru ekki eitt af því sem hækkar fasteignaverðið þar.

—–

Moskubygging þarf að vera reist í sátt við næsta umhverfi sitt, eins og gildir með aðrar slíkar byggingar.

En að öðru leyti fer best á því að trúarhópar fái að vera í algjörum friði með sínar trúarskoðanir og að þeir troði þeim á móti ekki upp á neinn.

—–

Hér eru myndir af moskum í Oslóarborg.

moska oslo 1

moska oslo 3

moska oslo 2

Ég hef búið rétt hjá mosku á Indlandi síðustu 3 mánuði, en fyrir það bjó ég í nokkur ár nálægt Hallgrímskirkju. Bænakall er sönglað að ég held 5 sinnum á dag.

Að mínu mati er bænakallið í moskunni mun minna pirrandi en kirkjuklukkurnar, þó það heyrist oftar.

Davíð Logi Sigurðsson

Ég bý nánast við hliðina á mosku í Beirút í Líbanon og jafnvel þegar söngurinn byrjar klukkan fjögur á nóttunni, og ég rumska stundum, þykir mér það bara indæll söngur og afar seiðandi. Hvað er málið?

“En að öðru leyti fer best á því að trúarhópar fái að vera í algjörum friði með sínar trúarskoðanir og að þeir troði þeim á móti ekki upp á neinn.”

Ég er ekki sammála þessu Andrés. Við sem samfélag eigum einmitt að vera vakandi um trúarskoðanir og hvernig þær hafa áhrif á samfélagið og þá sem þeim lúta.

Spurningin: Á Samfélagið að gefa afslátt á mannréttindum í nafni trúfrelsis? Er fullkomlega eðlileg…. alveg sama hvaða trúarbrögð eiga í hlut.

Hvar eru mörkin? Ein augljósasta spurningin hvað varðar múslima er til dæmis: Á samfélagið að umbera að konur hylji andlit sín vegna trúar sinnar? Af hverju ekki að spyrja okkur núna áður en það gerist… því það mun gerast.

Kristin kirkja er undir stöðugri smásjá og gagnrýni. Margir taka það gagnrýnishlutverk meir að segja mjög alvarlega.

Það þykir kannski ekki stór hópur um 1000 múslimar á Íslandi. Þessi tala fer aðeins hækkandi. Og þetta er stórt trúarsamfélag hjá 300 þúsund manna samfélagi. Hvítasunnukirkjan er svipuð að stærð og er hún ágætlega áberandi.

Nú er bara komið að íslendingum að virkilega að fara að horfast í augu við félagslegar og siðferðilegar spurningar hvað varðar islamska trú. Og það á að gera það án upphrópana og án þess að fólk sé stimplað fordómafullt.

Í sumum tilfellum er aðeins um að ræða að fræða fólk, til að taka á fordómum. Margt ef ekki flest fólk er hrætt við Islam. Og ótti elur oft af sér fordóma. Ef einhvern tíma er þörf á umræðu um Islamska trú á Íslandi þá er það einmitt núna. Þess vegna er nauðsynlegt að fólkið sem er á jörðinni og skilur hvað liggur á bak við fordóma blandi sér í umræðuna án þess að dæma einn né neinn. Heldur spyrja opinna spurninga og fræða fólk.

Ég spyr bara, hvað eru múslímar alltaf að flæða um öll lönd? þ.e. til Vesturlanda? Þeir sækja til menningarheima sem eru gjörólíkir þeirra eigin, þar sem kristni og gildi eins og mannréttindi, kvenfrelsi, neysla áfengis og svínakjöts og lýðræði eru kjarnagildi. Þetta er gildi sem eru andstæð Íslam. En hversvegan sækja múslímar þá til þessara landa í svona áköfum mæli.
Svarið er einfalt: Köllun sérhvers múslíma er að ná öllum heiminum undir Íslam. Þessir þjóðflutningar þeirra til allra landa heimsins er hluti af þessari stefnu.
Skv. trúarskoðun Íslam eru tvö “hús” í heiminum, “hús íslams” og “hús hinna trúalausu” eins og þeir kjósa að kalla alla þá sem ekki aðhyllast íslam. Skv. trúarskoðun þeirra er stríð milli þessar tveggja húsa og friður kemst ekki á fyrr en allur heimurninn hefur undirgengist íslamstrú. Æðsta takmarkið er að gera heiminn að einu allsherjar Pan-Íslömsku Khalífa-einveldi stjórnað skv. Sharía-lögum Kóransins.

Jhe, þú skrifar:

“Spurningin: Á Samfélagið að gefa afslátt á mannréttindum í nafni trúfrelsis? Er fullkomlega eðlileg…”

Ágæt spurning, sem kallar á þá spurningu hvernig moska brjóti á mannréttindum. Á Íslandi er trúfrelsi og bann við moskum hér væri einmitt afsláttur á mannréttindum.

“Kristin kirkja er undir stöðugri smásjá og gagnrýni. Margir taka það gagnrýnishlutverk meir að segja mjög alvarlega.”

Samt eru hundruð kirkna á Íslandi. Þeir sem hafa vakið hvað mesta athygli fyrir gagnrýni á þá fyrirgreiðslu sem kristin trú fær hérlendis hafa líka aldrei hvatt til að kirkjur yrðu rifnar, svo ég viti til.

Hinn Kristni: Þetta er algjört bull sem þú ert að að segja. Þetta er bara venjulegt fólk sem er að lifa sínu lífí. Það hefur ekkert markmið um að ríkja yfir þér.

Magnús…. enda er ég ekki á móti því að það komi moska. Alls ekki nema síður sé. Eða lastu það úr orðum mínum að ég sé á móti mosku?

Hins vegar finnst mér fullkomlega eðlilegt og í raun ber þegnum skylda til að láta sig varða hvað fram fer innandyra… jafnt í kirkjum sem moskum.

Einnig. Ég skrifa ekki undir það sem Hinn kristni er að skrifa. En orð hans eru gott dæmi um hvernig óttinn getur snúist upp í harðvítuga fordóma.

Almennt séð þá er það rétt eins og Andrés bendir á að lang flestir múslimar eru bara venjulegt fólk sem er að lifa sínu lífi. En það breytir ekki þeirri staðreynd að ekki lengra frá okkur en í Danmörku og Bretlandi hafa þrifist öfgasamtök innan hins múslimska samfélags sem deila einmitt þeirri heimssýn sem Hinn Kristni vill svo ákaft klína á “alla” múslima.

Og á þeim víðsjárverðu tímum sem við lifum þá þurfa íslendingar að spyrja sjálfa sig hvernig við mætum slíku fólki þegar það fer að hreiðra um sig hér á Fróni… því það mun mjög sennilega gerast. Ef reynslan hefur kennt okkar norrænu nágrannaþjóðum eitthvað þá er það einmitt það.

Afskiptaleysi og misskilið umburðarlyndi er ekki svarið.

Íslendingar þurfa að svara fyrir sig nokkrum erfiðum spurningum á næstu árum. Hvort sem þeim líkar betur eða ver.

Já, ég skildi það þannig að þú værir á móti mosku, jhe. Ástæðan fyrir því var sú að mér fannst tónninn hjá þér þannig; ekkert kom fram um að þú styddir skilyrðislausan rétt fólks til að iðka sína trú, og mér fannst einkennilegt að fara að tala um ýmsa fyrirvara þegar þessi fyrirhugaða moska er málið til umræðu, nema maður hefði eitthvað við hana að athuga.

Ok. En þá misskilur þú mig. Ég er ekki á móti Mosku. En ég er á móti að það meigi ekki ræða trúarbrögð. Sama hver þau eru. Og ég held því fram, eins og áður sagði, að það sé samfélagsleg skylda okkar að ræða trúbrögð/trúarskoðanir fólks í sem víðasta samhengi.

Hvaða fyrirvara var ég að setja við Mosku í Reykjavík? Enga. Upphaflegt komment mitt var viðbrögð við setningu Andrésar að okkur kæmi ekki trúarskoðanir annarra við. Trúarbrögð og siðferðisleg gildi þeirra móta samfélög. Það kemur öllum við.