Þá er komið í ljós hvernig kápan á bókinni Frozen Assets mun líta út.

Þetta er hrunbók hugsuð fyrir alþjóðlegan markað. Ármann Þorvaldsson fyrrverandi forstjóri Singer og Friedlander Bretlandsarms Kaupþings skrifar.
Held það sé sá sami og fékk Duran Duran og Tom Jones til að spila í afmælinu sínu og var ásamt konu sinni virkur í samkvæmislífinu í Bretlandi.
Það er Jónas Sigurgeirsson fyrrverandi framkvæmdastjóri samskiptasviðs Kaupþings sem gefur bókina út.
—–
Ég er ekki viss um að ég skilji til hvers þeir eru að gefa þessa bók út.
Efast um að það sé til að gera upp eigin mistök, þó að maður geti lifað í voninni.
En er ekki líklegra að þeir hafi einfaldlega séð enn eitt tækifærið til að græða á stöðu sinni. A.m.k. var ekki langt liðið frá bankahruninu þegar fréttist af þessum bókaskrifum Ármanns.
—–
Það verður því væntanlega lítið mark takandi á því sem Ármann segir í bókinni um Kaupþing og fall bankans. Og fátt gagnlegt fyrir þá sem vilja feta sig áfram á viðskiptasviðinu.
En verði í henni uppljóstranir um flottræfilshátt Ármanns sjálfs og annarra nýríkra íslenskra bankamanna á þrítugs- og fertugsaldri, gæti það átt eftir að höfða nægjanlega til gægjuþarfarinnar í manni til að maður tryggi sér eintak.
—–
Hér er textinn af bókakápunni:
Iceland truly lived the boom and bust. Once a tiny country on the edge of Europe, in less than two decades it became a global financial powerhouse. This is the story of how one man, one bank and one country experienced and affected the course of world economic history. Armann Thorvaldsson, a former CEO at Kaupthing in the UK, tells the story of how his company was transformed into a £6 billion international bank, by far the largest in his country’s history. Helping to build the biggest names in Icelandic business, Thorvaldsson represented the money behind such household names as Easyjet, Matalan, Hamleys and Karen Millen. As the boom got bigger, the Icelandic bankers worked and played hard with their international clients, including Gordon Ramsay, The Candy brothers, Mike Ashley and Robert Tchenguiz. Moving from Reykjavik to London, Monte Carlo and St Tropez, they seemed unstoppable. Yet, when the bust came, even the most frantic attempts to save the bank were fruitless, leading to the total collapse of the Icelandic economy. Thorvaldsson’s reflections on exactly what happened and why make compelling reading.
Armann Thorvaldsson is the former CEO of Kaupthing, Singer & Friedlander, the UK subsidiary of the Icelandic Kaupthing Bank. He was previously head of Kaupthing’s Investment Banking division, and was instrumental in the international expansion of the bank. He holds an MBA from Boston University. Armann now lives in London with his family.

6 ummæli
RSS-veita fyrir þessa færslu
Trackback link
http://andres.eyjan.is/wp-trackback.php?p=1338
12. ágúst, 2009 at 8:44 eh.
lesandi
jú þetta er sá hinn sami og flaug heilu þotunum út í margfræg partí, þar sem meðal annars símon og tom sáu um gleðina.
12. ágúst, 2009 at 8:48 eh.
itg
Skrýtið !
Armann Thorvaldsson, a former CEO at Kaupthing in the UK, tells the story of how his company was transformed into a £6 billion international bank, by far the largest in his country’s history.
Banki sem átti í raun ekkert nema skuldir eins og sagan segir. Þessi maður hlýtur að vera íslenskur hámenntaður bankamaður. Hann fattar þetta ekki ennþá??
13. ágúst, 2009 at 12:07 fh.
Halldór Á
Það setur að mér hroll að sjá setninguna “how his company was transformed into a £6 billion international bank.” Síðan hvenær var Kaupþing alþjóðlegur banki? Kaupþing var aldrei alþjóðlegur banki, Kaupþing var ræningjabæli.
Maður fær sterklega á tilfinninguna að þarna ætli Ármann að sýna svolítið rósrauða mynd af sterku og kláru útrásarvíkingunum sem ætluðu sér stóra hluti og væru núna stærstir og mestir í heiminum ef helvítis Lehman bræðurnir hefðu ekki farið á hausinn.
Þarna segir líka “when the bust came.” Alveg eins og þeir hafi bara verið að bankasýslast þegar allt í einu allt fór á hausinn. Eins og þeir hafi hvergi komið nærri. Ég held að þú eigir kollgátuna Andrés, að það verði lítið markt takandi á því sem Ármann hefur að segja sjálfum sér til varnar.
13. ágúst, 2009 at 8:38 fh.
Siggi
“This is the story of how one man, one bank and one country experienced and affected the course of world economic history”
Er ekki í lagi með þessa klikkhausa
þetta hljómar eins og sketch hjá tvíhöfða
13. ágúst, 2009 at 9:03 fh.
Arinbjörn Kúld
Er ekki verið að spauga? Eru þessir drengir að gefa út bók um hrunið?
14. ágúst, 2009 at 8:00 fh.
Lara
Algjör hörmung þetta. Sýnir bara hversu heimskir þessir bankamenn voru og þessi Ármann í fremstu röð. Ojjjjjbara. Verst hvað maður skammast sín mikið fyrir þetta lið. ER í USA að heimsækja fjölskyldu og ég fer hjá mér að þurfa að ræða þetta skítapakk