Ekki lesa atvinnuauglýsingar

Aðeins hefur dregið úr atvinnuleysinu undanfarið, en flestar spár benda til þess að það muni aftur aukast í haust og ekki ná hámarki fyrr en í byrjun næsta árs.

Í haust verða mörg fyrirtæki, sem verið hafa í gjörgæslu bankanna, sett í þrot sem ekki tekst að bjarga. Eitthvað verður líka um að minni fyrirtæki falli með þeim stóru.

Í haust og um áramótin fer jafnframt að bíta niðurskurðurinn hjá hinu opinbera. Viðbúið er að störfum muni fækka eitthvað hjá ríkinu.

Hart verður tekið á þeim sem vinna svart, en eru á atvinnuleysisbótum.

—–

Afhverju er ég að rifja upp þessar dómadagsspár?

Nú, auðvitað til að selja eitthvað ;)

—–

Þetta er námskeið sem ég er búinn að vera með í kollinum síðan nokkru fyrir bankahrunið.

Hugmyndin kviknaði í kjölfar þess að fleiri og fleiri kunningjar mínir fóru að falast eftir liðsinni mínu við að finna þeim ný störf og/eða verkefni.

Eftir tæplega níu mánaða meðgöngutíma er ég nú tilbúinn að byrja að kenna þessar aðferðir í formi námskeiðs. Og er byrjaður að heyra í félagasamtökum og verkalýðsfélögum um að þeir styrki félagsmenn sína á atvinnumarkaðnum með því að bjóða þeim svona námskeið.

Því ég hef bullandi trú á þessum aðferðum.

—–

Ég hef sjálfur aðeins einu sinni á ævinni fengið vinnu í gegnum atvinnuauglýsingu, en hef annars alltaf komist í vinnu eftir óformlegum leiðum. Samtöl mín við sérfræðinga í vinnumarkaðnum benda raunar til  þess að það sé, þegar allt kemur til alls, mun algengara en hitt.

Einnig hef ég í gegnum tíðina komið að mörgum óhefðbundnum ráðningum með beinum eða óbeinum hætti og er sannfærður um að margir verði af tækifærum vegna þess að þeir séu ekki meðvitaðir um þessar óbeinu leiðir.

—–

Í starfi mínu sem almannatengill og kennari á námskeiðum í vefmarkaðssetningu, hef ég líka uppgvötað ýmsar aðferðir sem aukið geta líkur á starfstilboðum úr óvæntri átt.

Staðreyndin er sú að hægt er að herma mikið af sömu aðferðum, og notuð eru við að koma fyrirtækjum á framfæri, upp á einstaklinginn. Þó að það kunni örugglega að hljóma nokkuð fjarlægt í eyrum margra, að þeir þurfi að gefa sínum “persónulegu almannatengslum” meiri gaum.

Ég er ekki mjög reyndur í námskeiðahaldi, þannig að ég kann ekki við að rukka of mikið til að byrja með.

2.500 kall fyrir tveggja tíma fyrirlestur, námskeiðsgögn og léttar veitingar.

—–

Fyrsta námskeiðið í því að koma sér á framfæri verður haldið í Háskóla Íslands, miðvikudaginn 8. júlí.*

Til að skrá sig, sendið tölvupóst á namskeid@godsamskipti.is.

Smellið tvisvar á myndina til að fá nánari upplýsingar.

komdu þér á framfæri

Frábært framtak Andrés.

-Bravó!

Gott framtak!

(Síðan er sérstakt rannsóknarefni hvernig menn geta komist í störf hjá RÍKINU, án þess að lesa atvinnuauglýsingar!) :-)

Glæsilegt framtak!!
Frábært verð!
Gangi þér vel með þetta meistari!

Jóhannes Árna

Þetta er svo þrælfínt framtak að ég myndi hiklaust mæta ef ég ætti þess nokkurn kost.

Ómar: Hvaða atvinnuauglýsingar?!?

;-)

Andrés, þetta er e.t.v. ágætis framtak. Ég er bara ósammála þér um eitt, því ég deili ekki upplifun þinni af vinnumarkaðnum, þ.e. að flest störf fáist gegnum tenglasnet frekar en umsóknir. Öfugt við þig þá hef ég aðeins einu sinni verið ráðinn í starf sem fékkst vegna tengsla, það var sumarstarf sem ég fékk að loknu fyrsta ári í menntaskóla. Öll störf sem ég hef fengið síðan þá hafa hinsvegar verið auglýst störf sem ég hef verið ráðinn til í kjölfar innsendrar umsóknar, þ.m.t. það starf sem ég er í núna. Kannski er ég bara svona einstakur… ;)